Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 15. ágúst 2014 16:15
Magnús Már Einarsson
Líkleg byrjunarlið í bikarúrslitaleik KR og Keflavíkur
Úr leik liðanna á mánudag.
Úr leik liðanna á mánudag.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
KR og Keflavík mætast í úrslitum Borgunarbikars karla klukkan 16:00 á morgun.

Hér að neðan má sjá líkleg byrjunarlið liðanna fyrir morgundaginn.

Stefán Logi Magnússon markvörður KR meiddist í deildarleik liðanna á mánudag og er tæpur en ef hann spilar ekki mun Sindri Snær Jensson standa á milli stanganna.

Norski varnarmaðurinn Endre Ove Brenne meiddist einnig í leiknum á mánudag en Aron Grétar Jafetsson mun væntanlega taka stöðu hans í hægri bakverðinum.

Hitað verður vel upp fyrir leik Keflavíkur og KR í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu milli 12 og 14 á morgun en þar verða leikmannahópar liðanna meðal annars bornir saman.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner