Magnús Gylfason leit á björtu hliðarnar eftir leik Vals og Stjörnunnar í Pepsi deild karla sem lauk nú rétt í þessu með 1-2 sigri Stjörnunnar. Magnúsi fannst liðið sitt spila bærilegan fótbolta í dag þó svo að stigin þrjú hafi ekki dottið þeirra megin.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 2 Stjarnan
,,Mér fannst við spila ágætlega í dag á löngum köflum, en alls ekki nóg, við unnum ekki leikinn, þessvegna sitjum við uppi með engin stig sagði Magnús í samtali við Fótbolta.net.
,,Heilt yfir hefðum við þurft að nýta færin sem við fengum örlítið betur. Við hefðum þurft að spila þetta örlítið hraðar og örlítið betur, það vantaði svona herslumuninn en Stjarnan voru skynsamir og refsuðu okkur illilega þegar við gerðum mistök."
Daði Bergsson spilaði ekki leikinn í dag vegna meiðsla en hann var skráður í byrjunarliðið.
,,Hann var bara ekki klár, við vorum að vonast til þess að hann yrði klár, hann var það á æfingu í gær. Svo bara fer hann að finna til í lærinu í upphitun og þá bara gat hann ekki spilað."
Mads Nielssen miðvörður Vals fór heim í vikunni, aðspurður hvers vegna hafði Magnús þetta að segja:
,,Hann vildi fara heim og við vorum ekkert að standa í vegi fyrir því."
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir