Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 15. ágúst 2014 19:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Mertesacker hættur með landsliðinu
Per Mertesacker.
Per Mertesacker.
Mynd: Getty Images
Per Mertesacker, leikmaður Arsenal, hefur hætt með þýska landsliðinu.

Mertesacker er þriðji leikmaður Þýskalands sem hefur hætt á síðustu vikum en Philipp Lahm og Miroslav Klose hættu einnig með landsliðinu fyrir skemmstu.

Hinn 29 ára gamli varnarmaður er búinn að leika 104 leiki með liðinu og var hluti af liðinu sem varð fyrsta lið innan Evrópu til að vinna HM í Suður Ameríku.

Mertesacker mun nú einbeita sér að því að spila með Arsenal en hann fékk lengra frí eftir HM ásamt Mesut Özil og Lukas Podolski sem einnig leika með Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner
banner