Þorri Geir Rúnarsson leikmaður Stjörnunnar var að vonum sæll og glaður með leik liðsins gegn Val í Pepsi deild karla sem lauk nú rétt í þessu á Vodafone vellinum að Hlíðarenda. Stjarnan innbyrti þar 1-2 útisigur og var Þorri sáttur með að sækja stigin þrjú á erfiðan útivöll.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 2 Stjarnan
,,Þetta er gríðarlega sætt, að koma hérna á erfiðan útivöll og taka þrjú stig og við erum bara gríðarlega sáttir með það," sagði Þorri Geir í samtali við Fótbolta.net.
,,Við tökum bara einn leik í einu en nú getum við farið að hugsa um Inter leikinn, maður hefur alltaf fundið fyrir honum í fjarska en núna getum við farið að einbeita okkur að honum."
Þorri Geir sem er fæddur 1995 hefur komið inn í lið Stjörnunnar og fyllt skarð Michael Præst sem verður ekki meira með Stjörnunni.
,,Þetta hefur gengið ágætlega hingað til og ég stefni að því að standa mig eins vel og ég get í næstu leikjum"
Aðspurður hvort að hann sé stressaður að spila á San Siro fyrir framan tugþúsundir áhorfenda hafði Þorri þetta að segja:
,,Ég er ekkert stressaður sko, þetta verður bara gaman, bara lífsreynsla."
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir