Evrópu-Innkastið - 1. þáttur tímabilsins
Evrópu-Innkastið snýr aftur eftir sumarfrí. Vikulega á tímabilinu munu Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fara yfir það helsta í Evrópufótboltanum. Sérstök áhersla er á enska boltann og Meistaradeildina.
Reglulega koma góðir gestir til þeirra en í fyrsta þættinum voru þeir tveir að fara yfir málin. Þátturinn var tekinn upp strax eftir 2-1 sigur Liverpool gegn Hoffenheim í umspili fyrir Meistaradeildina.

Meðal efnis: Liverpool í góðum málum í Meistaradeildinni, Coutinho málið, Gylfi að verða blár, Manchester United bauð til veislu á Old Trafford, blæs á Brúnni, Wenger vagninn keyrir í allar áttir, Rooney með gott frumsýningarpartí og spáð í spilin fyrir tímabilið
Sjá einnig:
Hlustaðu á Innkastið gegnum Podcast forrit
Hlustaðu á eldri þætti af Innkastinu
Athugasemdir