“Já, ég er mjög sátt við frammistöðuna. Við spiluðum sem ein liðsheild og gerðum það sem var lagt upp með,” sagði Diljá Ólafsdóttir, fyrirliði Þróttar R. eftir sigurinn á HK/Víkingi í kvöld.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 - 0 HK/Víkingur
Leikurinn var algjör toppslagur í 1. deildinni þar sem Þróttur komst upp að hlið Selfoss á toppi deildarinnar með sigrinum. Með tapi hefðu þær aftur átt sætaskipti við HK/Víking sem hefði þá tekið 2. sætið og Þróttur fallið niður í það 3. En breyttu þær einhverju fyrir þennan leik eftir að hafa tapað fyrir HK/Víkingi fyrr á tímabilinu?
“Já, við breyttum aðeins formation-inu og ákváðum að sækja á fleirum en við gerðum síðast. Við náðum að halda boltanum meira en við gerðum síðast og spila okkar leik sem er byggt uppá að spila boltanum niðri og ná mörgum sendingum saman og sækja hratt.”
Hvernig sér Diljá fyrir sér baráttuna á toppnum þegar aðeins 4 leikir eru eftir?
“Mér finnst hún mjög spennandi og við tökum einn leik í einu. Það er ÍR næsta laugardag og við förum í hvern einasta leik til að vinna hann.”
Agnes Þóra Árnadóttir, markmaður liðsins, nældi sér í rautt spjald á 50. mínútu í fyrri leik liðanna á þessu tímabili, en stóð sig virkilega vel í leiknum í kvöld og varði t.a.m. víti. Hvernig var að hafa köttinn Agnesi fyrir aftan sig í heilar 90 mínútur í kvöld?
“Agnes er geggjuð, uppáhaldið! Og varði víti! Frábær!”
Viðtalið við Diljá má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
Athugasemdir