Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 15. september 2014 19:33
Ívan Guðjón Baldursson
Danmörk: Hallgrímur og félagar gerðu jafntefli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
SønderjyskE 1 - 1 Hobro
1-0 Tommy Bechmann ('12)
1-1 Mads Hvilsom ('34)

Hallgrímur Jónasson lék allan leikinn er SønderjyskE gerði jafntefli við Hobro í dönsku efstu deildinni.

Tommy Bechmann kom heimamönnum yfir snemma í leiknum en Mads Hvilsom jafnaði leikinn síðar í hálfleiknum.

SønderjyskE óð í færum en tókst ekki að bæta öðru marki við og lauk leiknum því með jafntefli.

Hallgrímur og félagar eru í áttunda sæti með sjö stig eftir sjö umferðir á meðan Hobro er í öðru sæti, fjórum stigum frá toppsæti Midtjylland.
Athugasemdir
banner