Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 15. september 2014 21:17
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Sky 
Kaboul er nýr fyrirliði Tottenham
Younes Kaboul er nýr fyrirliði Tottenham.
Younes Kaboul er nýr fyrirliði Tottenham.
Mynd: Getty Images
Franski miðvörðurinn Younes Kaboul hefur verið gerður að fyrirliða Tottenham af Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóra félagsins.

Kaboul tekur við fyrirliðabandinu af öðrum miðverði, Michael Dawson, sem fór til Hull í síðasta mánuði.

Hugo Lloris og Emmanuel Adebayor eru þá varafyrirliðar félagsins enda mikilvægir og áhrifamiklir byrjunarliðsmenn.

,,Mauricio er búinn að tilkynna að Younes Kaboul er nýr fyrirliði félagsins og eru Hugo Lloris og Emmanuel Adebayor varafyrirliðar," tilkynnti félagið á Twitter í dag.

Kaboul er 28 ára gamall og á vel yfir 100 leiki að baki fyrir Tottenham en aðeins 5 fyrir franska A-landsliðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner