Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 15. september 2014 12:05
Magnús Már Einarsson
Luis Enrique: Messi gerir hluti sem ég sé ekki í Playstation
Mynd: Getty Images
Lionel Messi fékk mikið hrós fyrir frammistöðu sína í 2-0 sigri Barcelona á Athletic Bilbao um helgina.

Neymar skoraði bæði mörk Barcelona í leiknum eftir góðan undirbúning hjá Messi.

,,Hann gerir hluti á æfingum sem ég hef ekki einu sinni séð í Playstation," sagði Luis Enrique þjálfari Barcelona.

,,Messi er sá besti í heimi því hann skorar ekki bara heldur leggur hann upp líka. Það eru forréttindi að hafa hann í liðinu."
Athugasemdir
banner
banner
banner