Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 15. október 2016 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Daily Mail 
United 6-5 gegn Liverpool í sameiginlegu liði Daily Mail
Þessir komast báðir í liðið
Þessir komast báðir í liðið
Mynd: Getty Images
Manchester United á sex leikmenn gegn fimm leikmönnum frá Liverpool í sameiginlegu liði þessara tveggja liða sem kollegar okkar á Daily Mail settu saman. Tilefnið er leikur Liverpool og Manchester United á Anfield á mánudagskvöldið næstkomandi.

Það sem vekur athygli er að leikmenn eins og Juan Mata, Anthony Martial og Roberto Firmino komast ekki í liðið. Þá er Luke Shaw valinn fram yfir vítaspyrnusérfræðinginn James Milner í vinstri bakvörðinn.

Wayne Rooney er ekki í liðinu, en hann hefur átt erfitt uppdráttar upp á síðkastið. Brasilíumaðurinn Philippe Coutinho er í holunni og þeir hjá Daily Mail segja valið auðvelt hvað það varðar.

Það er ánægja að horfa á hann spila fótbolta, hann labbar í gegnum leiki á sínum eigin hraða. Margslungnir boltar í gegnum vörnina koma náttúrulega hjá honum og frammistaðan á útivelli gegn Arsenal í byrjun tímabils var ótrúleg. Það er engin samkeppni í þessu vali á milli Brasilíumannsins og Wayne Rooney á þessu augnabliki."

Hér að neðan má sjá mynd af liðinu í heild sinni, en fólk er aðallega að setja spurningamerki við það að hafa Roberto Firmino ekki í liðinu. Hann hefur átt gríðarlega flott tímabil og það kom mörgum á óvart að sjá hann ekki í þessu liði.

Eins og áður segir þá má sjá liðið á myndinni hér að neðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner