Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 15. október 2017 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho: Mun ekki ljúka ferlinum hérna
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho ætlar ekki að ljúka þjálfaraferlinum hjá Manchester United. Hann hefur útilokað það.

Mourinho er um það bil hálfnaður með þriggja ára samning sem hann gerði við Manchester United á síðasta ári.

„Það sem ég get sagt er að ég er stjóri með spurningar, með metnað og ég vil prófa nýja hluti," sagði Mourinho við Telefoot.

„Ég er viss um það að ég mun ekki ljúka ferlinum hérna."

Mourinho hefur talað um það að hann vilji stýra landsliði Portúgal áður en þjálfaraferlinum lýkur og þá hefur hann einnig talað fallega um franska stórliðið Paris Saint-Germain.
Athugasemdir
banner
banner