Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 15. október 2017 11:27
Hafliði Breiðfjörð
Óli Stefán áfram með Grindavík (Staðfest)
Óli Stefán ásamt Jónasi Þórhallssyni formanni við undirritunina.
Óli Stefán ásamt Jónasi Þórhallssyni formanni við undirritunina.
Mynd: Grindavík
Grindavík sendi frá sér tilkynningu rétt í þessu þess efnis að Óli Stefán Flóventson þjálfi liðið áfram næstu tvö árin.

Óli Stefán hefur íhugað alvarlega að hætta þjálfun liðsins og málin virtust vera komin á endastöð hjá honum og félaginu.

Viðræður héldu þó áfram með þeirri niðurstöðu að hann hefur núna skrifað undir nýjan samning við félagið.

Undir stjórn Óla Stefáns endaði Grindavík í 5. sæti Pepsi-deildarinnar með 31 stig, jafnmörg stig og KR í 4. sætinu.

Tilkynning Grindavíkur
Grindvíkingurinn Óli Stefán Flóventsson hefur framlengt samningi sínum við Grindavík til tveggja ára.

Óli Stefán hefur komið að þjálfun Grindavíkur sl.þrjú ár, fyrst sem aðstoðarþjálfari hjá Tommy Nielsen og síðan sem aðalþjálfari frá haustinu 2015 og verið að gera frábæra hluti með liðið.

Meðf.er mynd að Óla Stefáni ásamt Jónasi Þórhallssyni undirrita tveggja ára samstarfssamning.
Athugasemdir
banner
banner