Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 15. október 2017 21:33
Ívan Guðjón Baldursson
Paddy Power telur Koeman líklegastan til að vera rekinn
Mynd: Getty Images
Veðmálasíðan Paddy Power telur líklegast að Ronald Koeman verði næstur til að hrökklast úr starfi í ensku Úrvalsdeildinni.

Crystal Palace rak Frank de Boer á dögunum eftir skelfilega byrjun þar sem félaginu tókst ekki að skora eitt einasta mark í deildinni.

Koeman stýrir Everton og er félagið aðeins búið að vinna þrjá af ellefu leikjum tímabilsins og er með 8 stig eftir 8 umferðir í Úrvalsdeildinni.

Paddy Power telur Sean Dyche og Louis van Gaal vera líklegustu arftaka Hollendingsins,

Slaven Bilic er einnig talinn líklegur til að missa stjórastöðuna hjá West ham og er staða Hodgson, sem er aðeins nýlega tekinn við Palace, einnig óörugg.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner