Íslensku miðjumennirnir Rúnar Már Sigurjónsson og Guðlaugur Victor Pálsson spiluðu báðir í svissnesku úrvalsdeildinni í dag.
Guðlaugur Victor og liðsfélagar hans í Zürich nýttu sér það að keppinautarnir í Young Boys töpuðu sínum leik. Zürich vann 3-1 gegn Thun og brúaði bilið að toppliði Young Boys í þrjú stig.
Guðlaugur Victor spilaði allan leikinn á miðju Zürich og hann lagði upp annað markið fyrir Raphael Dwamena.
Rúnar Már spilaði svo tæpan klukkutíma þegar Grasshoppers gerði 1-1 jafntefli gegn Luzern á sama tíma.
Grasshoppers er í fimmta sæti deildarinnar með 14 stig.
Grasshoppers 1 - 1 Luzern
0-1 Shkelqim Demhasaj ('7)
1-1 Marco Djuricin ('66)
Thun 1 - 3 Zürich
0-1 Michael Frey ('26)
0-2 Raphael Dwamena ('41)
1-2 Simone Rapp ('54)
1-3 Michael Frey ('61)
Athugasemdir