Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mið 15. nóvember 2017 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aguero má spila um helgina - Svimaði mikið
Mynd: Getty Images
Serrgio Aguero mun líklega vera tilbúinn í slaginn þegar Manchester City mætir Leicester í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Aguero var fluttur upp á sjúkrahús þegar hálfleikur var í vináttulandsleik Argentínu og Nígeríu í gær.

Víða var fjallað um það að liðið hefði yfir Aguero, en það reyndist ekki rétt. Samkvæmt yfirlýsingu sem Manchester City sendi frá sér svimaði honum mikið og þess fór hann upp á sjúkrahús.

Aguero er kominn til Manchester, en hann verður skoðaður frekar af læknaliði Manchester City í dag og á næstu dögum.

Samkvæmt Daily Mail getur Pep Guardiola valið Aguero í lið sitt ef hann vill, en hann gæti líka byrjað með Gabriel Jesus.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner