Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 15. nóvember 2017 17:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Halldóra Birta samdi við Selfoss
Halldóra Birta og Svava Svavarsdóttir, stjórnarkona, handsala samninginn.
Halldóra Birta og Svava Svavarsdóttir, stjórnarkona, handsala samninginn.
Mynd: Selfoss
Miðjumaðurinn Halldóra Birta Sigfúsdóttir hefur skrifað undir þriggja ára samning við Selfoss. Hún gekk í raðir félagsins frá Fjarðabyggð í sumar.

Halldóra Birta er sextán ára gömul og spilaði sex leiki með Selfossi í 1. deild kvenna í sumar er Selfoss komst upp í Pepsi-deildina.

Í haust var hún svo valin í fyrsta sinn í U17 ára landslið Íslands og lék þrjá leiki með liðinu í undankeppni Evrópumeistaramótsins 2018.

„Halldóra Birta kom til okkar í júlíglugganum og hjálpaði okkur mikið í lokahluta mótsins. Hún er búin að bæta sig sem leikmaður síðan hún kom til okkar og er tilbúin að leggja mikið á sig enda með frábært hugarfar. Hún á eftir að þróa sinn leik ennþá meira og er klárlega framtíðarleikmaður Selfoss," segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Selfoss.

Penninn er á lofti á Selfossi þessa daganna. Í gær skrifaði sóknarmaðurinn Barbára Sól Gísladóttir undir nýjan þriggja ára samning við félagið
Athugasemdir
banner
banner