Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 15. desember 2016 21:35
Jóhann Ingi Hafþórsson
Gústi: Vona að þeir hafi fengið stórt Fjölnishjarta og elti ekki peningana
Ágúst Gylfason
Ágúst Gylfason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis var að sjálfsögðu kátur eftir 6-1 sigur á Íslandsmeisturum FH í úrslitaleik Bose mótsins í dag.

Hann er mjög hrifinn af þessu móti og sérstaklega úrslitaleikjunum sem hafa verið magnaðir síðustu ár.

„Þetta var mjög gaman. Bæði lið stilltu upp ungum strákum í bland við þá eldri. Þetta var gríðarleg skemmtun og þessir úrslitaleikir í þessu Bose móti hafa verið mjög skemmtilegir undanfarin ár. Það var 7-2 í fyrra og núna 6-1, þetta er bara veisla."

Tobiast Salquist og Martin Lund Pedersen voru með Fjölni á síðustu leiktíð en ekki er ljóst hvar þeir spila næsta sumar. Ágúst vonar að þeir verði áfram í Grafarvogi.

„Þetta eru flottir strákar og við sjáum hvað setur og hvort þeir komi eða hvað verður. Það er nóg af ungum strákum sem geta tekið við keflinu. Þetta eru frábærir leikmenn og ég vona að þeir hafi fengið stórt Fjölnishjarta og elti ekki peningana."

Bojan Stefán Ljubicic spilaði með Fjölni í leiknum en hann hefur í gegnum tíðina leikið með Keflavík en hann var lánaður í Fram, seinni part síðustu leiktíðar.

„Bojan er búinn að æfa í viku og ég vildi sjá hann í leik. Hann skoraði frábært mark og stóð sig vel. Ég er ánægður með hann og við sjáum til hvað við gerum í framhaldinu."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner