Gerard Deulofeu framherji Barcelona er í hættu á því að missa af viðureign liðsins við Real Madrid sem fer fram um næstu helgi.
Framherjinn varð fyrir meiðslum á æfingu í gær. Þessi 23 ára leikmaður mun missa af leiknum gegn Deportivo La Coruna og gæti sem fyrr segir einnig misst af El Clasico.
Framherjinn varð fyrir meiðslum á æfingu í gær. Þessi 23 ára leikmaður mun missa af leiknum gegn Deportivo La Coruna og gæti sem fyrr segir einnig misst af El Clasico.
Deulofeu hefur ekki fundið sig almennilega með Barcelona á tímabilinu en hann hefur einungis skorað 1 mark í 9 leikjum.
Athugasemdir