Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. desember 2017 11:18
Magnús Már Einarsson
Íslenski landsliðshópurinn - Fjórir nýliðar fara til Indónesíu
Icelandair
Felix Örn er einn af nýliðunum.
Felix Örn er einn af nýliðunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hilmar Árni er í hópnum.
Hilmar Árni er í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Hallgrímsson tilkynnti í dag landsliðshópinn fyrir komandi vináttuleiki gegn Indónesíu dagana 10 og 14. janúar. Ekki er um alþjóðlega leikdaga að ræða og því er landsliðshópurinn mikið breyttur.

Fjórir nýliðar eru í hópnum en það eru Hilmar Árni Halldórsson, Felix Örn Friðriksson, Samúel Kári Friðjónsson og Mikael Anderson. Auk þess á Anton Ari Einarsson ekki landsleik að baki en hann hefur verið áður í hópnum.

Indónesía er að undirbúa sig fyrir Asíuleikana á næsta ári þar sem U23 ára lið keppa. Líklegt er að U23 ára liðið spili fyrri leikinn gegn Íslandi en seinna liðið verði blanda úr aðalliðinu úr U23 ára liðinu.

Leikirnir fara fram á aðalleikvangi Indónesíu sem tekur 88 þúsund manns í sæti.

Markverðir:
Rúnar Alex Rúnarsson (Nordsjælland)
Anton Ari Einarsson (Valur)
Fredrik Schram (Roskilde)

Varnarmenn:
Jón Guðni Fjóluson (Norrköping)
Ragnar Sigurðsson (Kazan)
Sverrir Ingi Ingason (Rostov)
Hjörtur Hermannsson (Bröndby)
Hólmar Örn Eyjólfsson (Levski Sofia)
Haukur Heiðar Hauksson (AIK)
Viðar Ari Jónsson (Brann)
Böðvar Böðvarsson (FH)
Felix Örn Friðriksson (ÍBV)

Miðjumenn:
Arnór Ingvi Traustason (Malmö)
Aron Sigurðarson (Tromsö)
Arnór Smárason (Hammarby)
Mikael Anderson (Venssyssel)
Hilmar Árni Halldórsson (Stjarnan)
Samúel Kári Friðjónsson (Valerenga)

Sóknarmenn:
Óttar Magnús Karlsson (Molde)
Björn Bergmann Sigurðarson (Molde)
Kristján Flóki Finnbogason (Start)
Tryggvi Hrafn Haraldsson (Hammarby)
Athugasemdir
banner
banner
banner