Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 15. desember 2017 21:30
Ingólfur Stefánsson
Sjáðu leikmenn Barcelona sýna fótboltahæfileika sína á körfuboltavelli
Mynd: Getty Images
Leikmenn Barcelona fara á kostum í nýrri auglýsingu frá Gillette. Þar sýna leikmenn á borð við Luis Suarez, Ivan Rakitic og Jordi Alba fótboltahæfileika sýna á körfuboltavelli.

Leikmennirnir reyndu að hitta fótbolta í körfuna frá mismunandi stöðum. Miðjumaðurinn Ivan Rakitic átti fallegasta skotið úr stöðu sem var samkvæmt auglýsingunni ómögulegt að skora úr.

Leikmönnunum gekk misvel að hitta í körfuna úr styttri færunum en það var Rakitic sem stal senunni þegar hann skaut boltanum úr áhorfendastúkunni, yfir allan völlinn og í körfuna. Skot Rakitic ásamt fleiri tilraunum leikmannanna má sjá í spilaranum hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner