Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 16. janúar 2018 13:30
Magnús Már Einarsson
Crystal Palace ætlar að kaupa Babacar eða Dembele
Moussa Dembele hefur skorað 40 mörk fyrir Celtic síðan hann kom til félagsins 2016.
Moussa Dembele hefur skorað 40 mörk fyrir Celtic síðan hann kom til félagsins 2016.
Mynd: Getty Images
Crystal Palace ætlar að bæta við framherja áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðarmótin.

Khouma Babacar hjá Fiorentina og Moussa Dembele hjá Celtic eru á óskalistanum.

Fiorentina vill fá 15 milljónir punda fyrir hinn 24 ára gamla Babacar en hann hefur skorað fjögur mörk í Serie A á þessu tímabili.

Babacar skoraði tíu mörk á síðasta tímabili en West Ham og WBA hafa einnig skoðað hann.

Talið er að hinn 21 árs gamli Dembele kosti tuttugu milljónir punda en Brighton og fleiri félög í ensku úrvalsdeildinni hafa verið að skoða hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner