Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 16. janúar 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Leicester og West Ham eiga heimaleiki
Mynd: Getty Images
Það verða fimm leikir enska bikarsins endurspilaðir í kvöld og koma tvö úrvalsdeildarlið við sögu.

Leicester City tekur á móti Fleetwood Town. Þar getur Jamie Vardy mætt sínu gamla félagi, en liðin gerðu markalaust jafntefli á Highbury leikvanginum í Fleetwood.

West Ham á þá heimaleik við Shrewsbury eftir markalaust jafntefli í fyrri leiknum.

Liðsfélagar Arons Einars Gunnarssonar heimsækja Mansfield Town og Jón Daði Böðvarsson og félagar í Reading eiga heimaleik við Stevenage.

Viðureign Leicester og Fleetwood er sú eina sem verður sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

64-liða úrslit:
19:45 Leicester - Fleetwood Town (Stöð 2 Sport)
19:45 Mansfield - Cardiff
19:45 Sheffield Wed. - Carlisle
19:45 West Ham - Shrewsbury
20:00 Reading - Stevenage
Athugasemdir
banner
banner
banner