Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 16. janúar 2018 13:00
Elvar Geir Magnússon
Gerir Liverpool stórt tilboð í Oblak í sumar?
Oblak kom til Atletico frá Benfica 2014.
Oblak kom til Atletico frá Benfica 2014.
Mynd: Getty Images
Spænska blaðið AS segir að Liverpool muni gera stórt tilboð í markvörðinn Jan Oblak hjá Atletico Madrid í sumar.

Atletico vill gera nýjan samning við Oblak og ef Slóveninn skrifar undir verður erfitt fyrir Liverpool að fá hann.

Oblak hefur aðeins fengið á sig tólf mörk í 25 leikjum á þessu tímabili og er af mörgum talinn í hópi bestu markvarða heims. Ljóst er að það þarf ansi háa upphæð frá Liverpool ef félagið ætlar að krækja í kappann.

Markvarðamál Liverpool hafa mikið verið í umræðunni. Simon Mignolet og Loris Karius berjast um stöðuna en hvorugur þykir nægilega öflugur fyrir lið sem vill vera að berjast um titla.
Athugasemdir
banner
banner
banner