Fotbolti.net
16.02.13 - 12:47
Magnús Már Einarsson

Lengjubikarinn: Guðjón skoraði í sigri Blika á KA

Guðjón Pétur skoraði beint úr aukaspyrnu.

Guðjón Pétur skoraði beint úr aukaspyrnu.

Canon

Mynd: Breiðablik

Breiðablik 4- 1 KA
1-0 Olgeir Sigurgeirsson (\'62)
2-0 Árni Vilhjálmsson (\'64, víti)
2-1 Ómar Friðriksson (\'65)
3-1 Tómas Óli Garðarsson (\'76)
4-1 Guðjón Pétur Lýðsson (\'87)
Breiðablik sigraði KA 4-1 í Lengjubikar karla í dag en liðin áttust við í Fífunni.

Markalaust var fyrsta klukkutímann en í kjölfarið komu þrjú mörk á fjórum mínutum.

Tómas Óli Garðarsson kom Blikum í 3-1 með laglegu marki áður en Guðjón Pétur Lýðsson innsiglaði 4-1 sigur liðsins með marki beint úr aukaspyrnu.

Guðjón var að leika sinn fyrsta leik með Blikum í dag síðan hann kom til félagsins frá Val í síðustu viku og hann stimplaði sig strax inn með marki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.