Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 16. febrúar 2017 23:34
Stefnir Stefánsson
Mourinho lét liðið heyra það í hálfleik
Mourinho var ekki sáttur með hugarfar sinna manna í gær
Mourinho var ekki sáttur með hugarfar sinna manna í gær
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho stjóri Manchester United var allt annað en ánægður með fyrri hálfleik sinna manna í Evrópuleiknum gegn Saint Etienne í kvöld. Þá sérstaklega var hann ósáttur með hugarfar leikmannanna.

„Ég fékk þessa ónota tilfinningu um leið og ég labbaði inn í klefann. Það voru of mikil læti, gleði og menn virkuðu of afslappaðir." Sagði Mourinho eftir leik.

„Aðstoðarmenn mínir fundu líka fyrir þessu þegar liðið var að hita upp. Einhverjir af strákunum voru ekki rétt stilltir, ekki nógu einbeittir til að ná réttu spennustigi fyrir átökin. Svo þegar leikurinn byrjaði þá fékk ég staðfestingu á þessu, það fyrsta sem við gerðum var að gefa sendingu til baka á framherjann þeirra." Hélt Mourinho áfram en var mjög ánægður með viðbrögð sinna manna og seinni hálfleikinn í heild sinni.

„Fyrri hálfleikur var erfiður. Ekki bara fyrir leikmennina, líka fyrir mig á hliðarlínunni. Við áttum í vandræðum með samskipti en seinni hálfleikur var allt annað. Miklu betri."

„Við vorum heppnir að vera yfir í hálfleik. En eins og ég sagði þá var seinni hálfleikurinn allt annað."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner