Varnarmaðurinn Eric Bailly verður í leikmannahópi Manchester United gegn Huddersfield í enska bikarnum á morgun.
Bailly hefur verið frá keppni síðan í nóvember en þá fór hann í aðgerð á ökkla.
Þessar fréttir koma á góðum tíma fyrir Manchester United en Chris Smalling og Phil Jones hafa verið gagnrýndir fyrir frammistöðu sína í hjarta varnarinnar að undanförnu.

Ander Herrera og Marcus Rashford eru áfram fjarri góðu gamni líkt og í 1-0 tapinu gegn Newcastle um síðustu helgi.
Þá eru Zlatan Ibrahimovic og Marouane Fellaini líka á meiðslalistanum.
Athugasemdir