fös 16. febrúar 2018 23:45
Ívan Guðjón Baldursson
Conte: Erum tilbúnir fyrir Barcelona
Mynd: Getty Images
Antonio Conte telur sína menn vera tilbúna til að mæta Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir 4-0 sigur á Hull City í enska bikarnum.

Englandsmeistararnir byrjuðu árið á fjórum jafnteflum og töpuðu svo þremur leikjum á tveimur vikum í kringum síðustu mánaðarmót.

Sjálfstraustið virtist vera horfið eftir 3-0 tap gegn Bournemouth á eigin heimavelli og 4-1 tap á útivelli gegn Watford.

Liðið náði þó að koma til baka í 3-0 sigri gegn West Brom og telur Conte sjálfstraustið vera komið aftur eftir annan sigurinn í röð.

„Við þurftum þessa tvo sigra, þeir eru mjög mikilvægir fyrir sjálfstraustið. Núna erum við rétt stemmdir fyrir leikinn gegn Barcelona," sagði Conte.

„Þetta verða mjög erfiðir leikir gegn Barca og okkur hlakkar til að keppa við eitt af allra bestu liðum heims."
Athugasemdir
banner
banner
banner