Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 16. febrúar 2018 21:43
Ívan Guðjón Baldursson
England: Mahrez og Vardy komu Leicester áfram
Jamie Vardy og Riyad Mahrez ná vel saman á vellinum.
Jamie Vardy og Riyad Mahrez ná vel saman á vellinum.
Mynd: Getty Images
Leicester 1 - 0 Sheffied United
1-0 Jamie Vardy ('66)

Leicester City er komið í 8-liða úrslit enska bikarsins eftir 1-0 sigur á Sheffield United á heimavelli.

Gestirnir voru mjög agaðir í vörn og áttu nokkrar fínar rispur en heimamenn í Leicester verðskulduðu sigurinn.

Jamie Vardy gerði eina mark leiksins í síðari hálfleik. Hann skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Riyad Mahrez, sem var í byrjunarliðinu í fyrsta sinn í þrjár vikur.

Chelsea er þá við það að senda Hull City úr bikarnum. Staðan þar er 4-0 þegar tæplega tíu mínútur eru eftir af venjulegum leiktíma.
Athugasemdir
banner
banner