Selfoss 0 - 3 HK/Víkingur
0-1 Laufey Elísa Hlynsdóttir ('26)
0-2 Karólína Jack ('80)
0-3 Ástrós Silja Luckas ('85)
0-1 Laufey Elísa Hlynsdóttir ('26)
0-2 Karólína Jack ('80)
0-3 Ástrós Silja Luckas ('85)
Selfoss og HK/Víkingur áttust við í Kórnum í Faxaflóamótinu í kvöld og hafði HK/Víkingur betur.
Laufey Elísa Hlynsdóttir gerði eina mark fyrri hálfleiksins og var staðan 1-0 þar til á lokakaflanum.
Karólína Jack tvöfaldaði þá forystu HK/Víkings áður en Ástrós Silja Luckas gulltryggði sigurinn með þriðja og síðasta marki leiksins.
Þetta er fyrsta tap Selfyssinga á Faxaflóamótinu í ár og er toppbarátta A-riðilsins því úr sögunni.
Þetta var fyrsti sigur og fyrstu mörk HK/Víkings sem steinlá gegn FH og Blikum í fyrstu umferðunum.
Athugasemdir