Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 16. febrúar 2018 09:30
Magnús Már Einarsson
Mane: Efaðist aldrei um sjálfan mig
Mane fékk að eiga boltann fyrir þrennunna.
Mane fékk að eiga boltann fyrir þrennunna.
Mynd: Getty Images
Sadio Mane skoraði þrennu í 5-0 sigri Liverpool á Porto í fyrradag eftir talsverða markaþurrð undanfarnar vikur.

Mane hefur ekki náð að vera jafn áberandi í liði Liverpool og oft áður undanfarið en hann steig upp í leiknum á miðvikudaginn.

„Þetta var erfitt fyrir mig en þetta er hluti af fótboltanum," sagði Mane um lægðina hjá sér.

„Ég efaðist aldrei um að ég gæti hjálpað liðinu og ég hætti aldrei að leggja hart að mér á æfingum. Ég reyndi alltaf að vera jafnvægi, líka þegar þetta var ekki að ganga upp, því að það er mitt starf."

„Sem leikmaður er þetta stundum ekki auðvelt fyrir mig en ég efaðist aldrei um sjálfan mig."

Athugasemdir
banner