Víðir Garði hefur fengið króatíska varnarmanninn Tonci Radovnikovic í sínar raðir fyrir átökin í 2. deildinni í sumar.
Tonci þekkir til á Íslandi því hann spilaði með Fylki í Pepsi-deildinni 2015 og 2016.
Tonci þekkir til á Íslandi því hann spilaði með Fylki í Pepsi-deildinni 2015 og 2016.
Tonci spilaði 21 leik bæði árin og skoraði þrjú mörk 2015 en eitt mark árið eftir þegar Fylkir féll úr Pepsi-deildinni.
Hinn 29 ára gamli Tonci hefur spilað í næstu efstu deild í Króatíu með liðinu NK Solin og nú síðast NK Val.
Víðir Garði endaði í 3. sæti í 2. deildinni í fyrra og var tveimur stigum frá sæti í Inkasso-deildinni.
Athugasemdir