Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fim 16. mars 2017 20:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ási Arnars: Fullt af jákvæðum punktum
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fram.
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fram.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram þurfti að gera sér að góðu tap gegn Stjörnunni í Lengjubikarnum í kvöld. Leikurinn endaði með 2-1 sigri Stjörnunnar.

Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fram, var tekinn tali eftir leik og hann var fúll með að fá ekkert út úr leiknum.

„Þetta var mikill baráttuleikur. Við fáum núll stig út úr honum og það er fúlt, en við erum í undirbúningsferli og þá reynir maður að horfa á frammistöðu umfram úrslit og það var fullt af jákvæðum punktum í kvöld," sagði Ásmundur eftir leikinn.

Ási segir að hópurinn sé kominn töluvert lengra, ef miðast er við síðasta ár.

„Ef maður ber saman við árið í fyrra, þá finnst mér við vera komnir töluvert lengra áleiðis. Við þurfum hins vegar að halda vel á spöðunum fram að móti."

Markmiðið hjá Fram er að taka skref fram á við.

„Það er auðvitað markmiðið, leynt og ljóst, við viljum taka eins stór skref fram á við og við getum," sagði Ásmundur að lokum, en viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner