Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fim 16. mars 2017 22:59
Elvar Geir Magnússon
Binni Hlö: Trúi því að við getum tekið þátt í toppbaráttunni
Brynjar í baráttunni.
Brynjar í baráttunni.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Leiknir og Fjölnir áttust við í miklum markaleik í Lengjubikarnum í kvöld en Grafarvogsliðið vann 5-2.

„Tölurnar ljúga ekki og við fengum á okkur fimm mörk. Við gáfum fjögur, ef ekki öll fimm, á silfurfati. Við erum að tapa boltanum of auðveldlega og þeir eru góðir í að refsa," sagði Brynjar Hlöðversson, fyrirliði Leiknis.

Leikurinn var gríðarlega opinn og mörkin hefðu getað orðið mun fleiri.

„Eins og Gæi (Garðar Gunnar aðstoðarþjálfari) sagði við okkur þá hefði þetta getað endað 7-7. Við þurfum að nýta færin og fá færri mörk á okkur, þetta er ekki flókið!"

„Þetta hefur verið upp og niður hjá okkur á undirbúningstímabilinu en við erum að læra betur á hvor aðra og erum að læra á Kristó þjálfara. Við erum alltaf að þéttast og ég er mjög jákvæður."

Þegar Brynjar var spurður að því hvort hann teldi að Leiknir gæti blandað sér í toppbaráttu Inkasso-deildarinnar í sumar svaraði hann samstundis játandi.

„Auðvitað er það stefnan. Það eru fimm til sex lið sem ætla sér upp um deild, þetta verður hörkudeild sem ég hlakka til að takast á við."
Athugasemdir
banner
banner