Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 16. mars 2018 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ashley Barnes framlengir við Burnley
Mynd: Getty Images
Ashley Barnes er búinn að skrifa undir samning við Burnley sem ætlar að halda sínum helstu mönnum í sumar.

Barnes er 28 ára sóknarmaður. Hann er búinn að gera þrjú mörk í síðustu þremur leikjum Burnley og sjö á öllu tímabilinu.

Barnes skrifaði undir þriggja ára samning sem rennur ekki út fyrr en sumarið 2021, þegar Barnes verður 31 árs.

„Ég er að spila besta fótbolta ferilsins og er ótrúlega stoltur af því að vera partur af þessum klúbbi," sagði Barnes við undirskriftina.

„Félagið stefnir ekkert nema upp á við og það eru forréttindi að fá að taka þátt í þessu."

Jóhann Berg Guðmundsson hefur verið að gera góða hluti með Burnley á tímabilinu og eru orðrómar á kreiki um að hann verði seldur í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner