Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 16. mars 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Danny Williams frá út tímabilið
Mynd: Getty Images
Daniel Williams hefur verið að gera góða hluti með nýliðum Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni en missir af restinni af tímabilinu vegna meiðsla.

Williams hefur komið við sögu í langflestum leikjum liðsins á tímabilinu og klárt að hans verður saknað á lokaspretti fallbaráttunnar.

Varnartengiliðurinn meiddist á æfingu með Huddersfield og fer í aðgerð á sköflungi næsta föstudag.

„Huddersfield Town getur staðfest að miðjumaðurinn Danny Williams verður frá út tímabilið," stendur meðal annars í yfirlýsingu frá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner