Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 16. mars 2018 10:30
Magnús Már Einarsson
Fleiri á því að búningur Íslands sé mjög flottur
Mynd: KSÍ
Um helmingur lesenda Fótbolta.net telja að nýi landsliðsbúningurinn sé mjög flottur.

KSÍ og Errea kynntu í gær búninginn sem Ísland spilar í á HM í sumar.

Að venju eru skiptar skoðanir á búningum en hann virðist falla nokkuð vel í kramið hjá stuðningsmönnum Íslands.

Í könnun á forsíðu Fótbolta.net hefur rúmlega helmingur kosið að búningurinn sé mjög flottur.

Þriðjungur segir að búningurinn sé þokkalegur og um það bil 16% lesenda er ekki hrifin/n.

Staðan í könnunni:
Mjög flott - 1712 (50,64%)
Þokkaleg - 1127 (33,33%)
Ekki hrifin/n - 542 (16,03%)

Hér að neðan er hægt að taka þátt í könnunni.
Er Arne Slot rétti maðurinn fyrir Liverpool?
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner