Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, tilkynnir klukkan 13:15 í dag landsliðshópinn sem mætir Mexíkó eftir viku og Perú þriðjudaginn 27. mars í vináttuleikjum í Bandaríkjunum.
Um er að ræða síðasta landsliðshópinn áður en sjálfur HM hópurinn verður tilkynntur í maí.
Líklegt þykir að hópurinn verði nokkuð stór og að fleiri leikmenn verði í hópnum að þessu sinni en vanalega.
Orðrómur hefur verið um að Kolbeinn Sigþórsson, næstmarkahæsti leikmaður Íslands frá upphafi, verði í hópnum í fyrsta skipti síðan á EM í Frakklandi.
Fylgst verður með fundinum í beinni hér á Fótbolta.net klukkan 13:15. Hægt verður að horfa á útsendingu á Facebook og þá er lýsing á Twitter.
Fundurinn verður sýndur beint á heimasvæði okkar á Facebook
Athugasemdir