Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 16. mars 2018 19:55
Ingólfur Stefánsson
Lengjubikarinn: Valur í undanúrslit eftir sigur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 3-1 ÍBV
0-1 Sahab Zahedi Tabar('44)
1-1 Sjálfsmark ('53)
2-1 Patrick Pedersen('58)
3-1 Patrick Pedersen('70)

Valur og ÍBV mættust í Lengjubikar karla í kvöld, Fyrir leikinn voru Valsmenn með fullt hús stiga í fjórum leikjum. ÍBV var með einn sigur, eitt jafntefli og eitt tap í þremur leikjum.

Shahab Zahedi Tabar kom ÍBV yfir í lok fyrri hálfleiks þegar hann slapp einn í gegn þg liðið leiddi í hálfleik.

Valsmenn jöfnuðu metin þegar tæpar 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik þegar Ívar Örn Jónsson átti skot í Eyjamann og inn. Patrick Pedersen kom þeim svo yfir stuttu síðar.

Pedersen var aftur á ferðinni á 70. mínútu og tryggði Valsmönnum öruggan sigur.

Valsmenn fara því áfram í undanúrslit Lengjubikarsins og enda á toppi riðilsins með fullt hús stiga.
Athugasemdir
banner
banner
banner