Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 16. mars 2018 11:14
Magnús Már Einarsson
Meistaradeildin: Liverpool og Man City mætast
Liverpool mætir toppliði Manchester City.
Liverpool mætir toppliði Manchester City.
Mynd: Getty Images
Nú rétt í þessu var dregið í 8-liða úrslit í Meistaradeild Evrópu. Liverpool og Manchester City mætast í enskum slag. Fyrri leikurinn fer fram á Anfield og sá síðari á Etihad.

Manchester City burstaði Liverpool 5-0 í byrjun tímabils í ensku úrvalsdeildinni en Liverpool hafði betur 4-3 þegar liðin mættust á Anfield í janúar.

Juventus og Real Madrid mætast en þessi lið áttust við í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrra og þá hafði Real betur.

Barcelona leikur gegn Roma og Sevilla mætir þýsku meisturunum í Bayern Munchen.

8-liða úrslit:
Liverpool - Manchester City
Juventus - Real Madrid
Barcelona - Roma
Sevilla - Bayern Munchen

8-liða úrslitin fara fram 3/4 og 10/11. apríl næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner