Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 16. mars 2018 15:00
Magnús Már Einarsson
Nýja treyjan fær góðar viðtökur - Röð í Jóa Útherja
Treyjurnar sem eru til sölu í Jóa Útherja.
Treyjurnar sem eru til sölu í Jóa Útherja.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Ný landsliðstreyja hefur fallið vel í kramið hjá stuðningsmönnum íslenska landsliðsins en treyjan var kynnt í gær.

Treyjan, sem er frá Errea, er meðal annars til sölu í Jóa Útherja.

Í gær myndaðist röð í Jóa Útherja þegar treyjan fór í sölu og mikið hefur selst einnig í dag.

„Búningurinn hefur fengið mjög góðar viðtökur," sagði Viðar Valsson starfsmaður í Jóa Útherja í samtali við Fótbolta.net í dag.

Opið er í Jóa Útherja til 18:00 í dag og á morgun er opið frá 10 til 14.
Athugasemdir
banner
banner
banner