Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 16. mars 2018 12:00
Magnús Már Einarsson
Sóli Hólm spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Sóli Hólm.
Sóli Hólm.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Sóli hefur trú á sínum mönnum í Liverpool.
Sóli hefur trú á sínum mönnum í Liverpool.
Mynd: Getty Images
Leicester hendir Chelsea úr enska bikarnum samkæmt spá Sóla.
Leicester hendir Chelsea úr enska bikarnum samkæmt spá Sóla.
Mynd: Getty Images
Egill Helgason fékk sjö rétta þegar hann spáði í leikina í enska boltanum um síðustu helgi og er nú jafn Gaupa með besta árangur vetrarins. Egill er getspakur því hann var með besta árangurinn tímabilið 2013/2014.

Sólmundur Hólm spáir í leikina að þessu sinni en hann hefur slegið í gegn með uppistandsýningu sinni sem er í gangi þessa dagana.

Sóli spáir í leikina í 8-liða úrslitum enska bikarsins, leikina fjóra í ensku úrvalsdeildinni auk þess sem hann valdi tvo leiki í Championship deildinni til að fá tíu leiki.

Enska úrvalsdeildin

Bournemouth 2 - 1 WBA (15:00 á morgun)
King og Ake skora mörkin. Jordon Ibe leggur upp annað markið.

Huddersfield 1 - 2 Crystal Palace (15:00 á morgun)
Því miður mun Wagner, vinur okkar Liverpool manna, ekki ríða feitum hesti frá þessari viðureign. Palace vinnur með mörkum frá Zaha og Benteke.

Stoke 0 - 0 Everton (15:00 á morgun)
Þetta er steindautt jafntefl. Leikurinn verður jafn leiðinlegur og liðin sem spila hann.

Liverpool 3 - 1 Watford (17:30 á morgun)
Ég fæ ennþá velgju af því að hugsa um 3-3 leik liðanna fyrr í vetur. Það var ógeðslegur dagur. Ég vona að Liverpool niðurlægi Watford en það verður trúlega ekki meira en 3-1.

Enski bikarinn

Swansea 0 - 2 Tottenham (12:15 á morgun)
Swansea er ekki að fara að stoppa Tottenham.

Manchester United 2 - 0 Brighton (19:45 á morgun)
Ég vona innilega að Brighton vinni en því miður held ég að það gerist ekki.

Wigan 1 - 0 Southampton (13:30 á sunnudag)
Wigan er búið að fara erfiða leið á þennan stað sem þeir eu. Will Grigg hlustar á sína menn í stúkunni, kveikir í sér og skorar.

Leicester 2 - 1 Chelsea (16:30 á sunnudag)
Það er skemmtilegra að vera í Leicester en Chelsea um þessar mundir.

Championship

Bristol City 0 - 0 Ipswich (15:00 á morgun)
Hörður á skalla sem fer því miður í þverslá. Hann verður eins og klettur í vörninni.

Norwich 0 - 3 Reading (15:00 á morgun)
Jón Daði skorar tvö mörk.

Fyrri spámenn:
Gaupi (7 réttir)
Egill Helgason (7 réttir)
Gunnar Jarl Jónsson (6 réttir)
Haukur Harðarson (6 réttir)
Haukur Páll Sigurðsson (6 réttir)
Lillý Rut Hlynsdóttir (6 réttir)
Siggi Dúlla (6 réttir)
Steindi Jr (6 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (6 réttir)
Adolf Ingi Erlingsson (5 réttir)
Gummi Ben (5 réttir)
Gunnlaugur Jónsson (5 réttir)
Hallbera Guðný Gísladóttir (5 réttir)
Logi Bergmann (5 réttir)
Ólafur Ingi Skúlason (5 réttir)
Viðar Skjóldal - Enski (5 réttir)
Baldur Sigurðsson (4 réttir)
Birkir Már Sævarsson (4 réttir)
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (4 réttir)
Arnór Þór Gunnarsson (3 réttir)
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (3 réttir)
Hallgrímur Jónasson (3 réttir)
Hjálmar Örn Jóhannsson (3 réttir)
Hörður Magnússon (3 réttir)
Ólafur Darri Ólafsson (3 réttir)
Jón Ragnar Jónsson (1 réttur)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 78 26 +52 77
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 53 +8 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner
banner