Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 16. mars 2018 13:00
Magnús Már Einarsson
Þróttur fær Belga (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Þróttur R. hefur fengið belgíska kantmanninn Jasper Van Der Heyden í sínar raðir.

Jasper er 22 ára gamall en hann getur spilað á báðum köntunum.

Jasper ólst upp hjá Lierse en hann hefur einnig leikið með AA Geel í heimalandinu. Hann á leiki að baki með U18 ára landsliði Belga.

Þróttur endaði í 3. sæti í Inkasso-deildinni í fyrra en næsti leikur liðsins er gegn KA í Lengjubikarnum á morgun.

Komnir:
Guðmundur Friðriksson frá Breiðabliki
Jasper Van Der Heyden frá Belgíu

Farnir:
Grétar Sigfinnur Sigurðarson
Heiðar Geir Júlíusson í Fram
Oddur Björnsson hættur
Athugasemdir
banner
banner
banner