Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mið 16. apríl 2014 17:15
Magnús Már Einarsson
Damien Duff á förum frá Fulham
Mynd: Getty Images
Damien Duff mun yfirgefa herbúðir Fulham í sumar eftir fimm ár hjá félaginu.

Duff hefur leikið 173 leiki með Fulham síðan hann kom til félagsins frá Newcastle árið 2009.

Þessi 35 ára gamli kantmaður frá Írlandi verður samningslaus í sumar en hann stefnir á að fara þá í MLS-deildina.

,,Ég mun fara frá Fulham," sagði Duff.

,,Félagið hefur ekki rætt við mig og ég hef ekki rætt við félagið en við þurfum ekki að ræða saman."
Athugasemdir
banner
banner
banner