Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   mið 16. apríl 2014 13:30
Magnús Már Einarsson
Geir Ólafs á leið á El Clasico - Spáir Barcelona sigri
Geir Ólafsson.
Geir Ólafsson.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Barcelona og Real Madrid mætast í úrslitaleik spænska konungsbikarsins klukkan 19:30 í kvöld. Leikurinn fer fram á Mestalla heimavelli Valencia en stórsöngvarinn Geir Ólafsson verður á vellinum.

,,Ég er svo heppinn að unnusta mín býr þannig að hún fær frímiða á alla leiki Real Madrid. Ég fæ að fara á leikinn í kvöld og hlakka mikið til," sagði Geir í Skype símtali við Fótbolta.net í dag frá Benidorm.

,,Auðvitað er eftirsjá að sjálfur Ronaldo sé ekki með en liðið er það gott að það kemur með önnur gæði í staðinn."

,,Barcelona hefur ekki verið að gera jafngóða hluti undanfarið og þeir gætu bjargað tímabilinu í kvöld. Þetta verður mjög góður leikur. Ég vona að Real Madrid vinni en ég er hræddur um að Barcelona vinni 2-0."


Geir hefur verið fastagestur á leikjum Real Madrid í vetur en hann sá leik liðsins gegn Barcelona á dögunum þar sem Börsungar höfðu betur 2-1.

Í viðtalinu hér að ofan má sjá Geir tjá sig um þá upplifun.
Athugasemdir
banner
banner