Arsene Wenger, stjóri Arsenal, býst við því að Mesut Özil mæti aftur til leiks þegar liðið mætir Hull City í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.
Þýski landsliðsmaðurinn hefur ekki komið við sögu hjá Arsenal síðan í 1-0 tapinu gegn Stoke í byrjun mars, en hann meiddist aftan í læri.
,,Özil ætti að vera til í slaginn um helgina," sagði Wenger eftir 3-1 sigur sinna manna gegn West Ham í gær.
Þá er Abou Diaby allur að koma til og gæti byrjað að æfa af fullum krafti í vikunni. Diaby, sem hefur mikið verið meiddur undanfarin ár, hefur ekkert spilað á tímabilinu eftir að hafa slitið krossband í fyrra.
Athugasemdir