,,Þetta spilaðist allt í lagi, mér fannst FH hafa undirtökin í fyrri hálfleik. Mér fannst við byrja ágætlega fyrsta korterið en FH taka svo yfir," sagði Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Stjörnunnar eftir 1-2 tap gegn FH í 8 liða úrslitum Lengjubikarsins í kvöld.
,,Við vorum mikið í vörn og ákváðum að breyta því í seinni hálfleik. Við skoruðum ágætt mark í byrjun og settum pressu á þá. Það gekk vel upp, mér fannst leikurinn vera okkar fyrstu 25 mínúturnar. Svo fáum við á okkur mark úr föstu leikatriði sem kemur í bakið á okkur og eftir það fannst mér við missa trú á þessu. Svo var annað markið þeirra algjört klúður af okkar hálfu. Ég er ekkert ósáttur við leikinn í heild sinni en alltaf leiðinlegt að tapa."
Rúnar Páll hefur leitað að liðsstyrk fyrir Stjörnuliðið upp á síðkastið.
,,við erum að halda þessu opnu og sjáum hvernig það gengur. Annars er þetta hópurinn sem við erum með og við trúum á hann. Blanda af ungum og skemmtilegum drengjum og gömlum hundum. Það var blóðtaka að missa Halldór Orra og við erum að sjá hvort við getum styrkt frekar en það er ekkert auðvelt að finna réttann mann í það. Það er stuðningur frá félaginu og við erum að leita að manni í fremstu víglínu sem getur leyst Halldór Orra af."
Athugasemdir