mið 16. apríl 2014 21:21
Elvar Geir Magnússon
Spánn: Bale tryggði Real Madrid bikarinn
Gareth Bale innsiglaði bikarsigur Real Madrid.
Gareth Bale innsiglaði bikarsigur Real Madrid.
Mynd: Getty Images
Barcelona 1 - 2 Real Madrid
0-1 Angel Di Maria ('17)
1-1 Marc Barta ('68)
1-2 Gareth Bale ('85)

Hrakfarir Barcelona halda áfram en liðið tapaði fyrir Real Madrid í úrslitaleik Konungsbikarsins sem fram fór á Mestalla-vellinum í Valencia.

Angel Di Maria kom Real Madrid yfir eftir sautján mínútna leik en það var rangstöðulykt af markinu. Þeim hvítklæddu er sama, markið taldi.

Madrídarliðið var nálægt því að bæta við öðru marki en á 68. mínútu náði Marc Barta að skora með skalla.

Gareth Bale reyndist svo hetja Real Madrid þegar hann sýndi ógnarhraða sinn, stakk Barta af og skoraði sigurmarkið milli fóta markvarðar Barcelona.

Real Madrid er því bikarmeistari.
Athugasemdir
banner
banner