Bjarni Jóhannsson og lærisveinar í KA voru í banastuði gegn Fylki í kvöld og lönduðu 5-1 sigri og sæti í undanúrslitum. KA fær ÍA í heimsókn norður á sunnudag.
„Það var frábært að koma svona bakdyramegin í þetta og eiga svo fínan leik hérna," sagði Bjarni eftir leikinn.
„Við byrjuðum leikinn gríðarlega vel og spiluðum fyrri hálfleikinn af miklum krafti. Við fórum í taugarnar á Fylkismönnum og vorum svolítið grófir. Seinni hálfleikurinn var frekar slappur, sérstaklega til að byrja með."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir