Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
   fim 16. apríl 2015 22:47
Elvar Geir Magnússon
Ingvar Kale: Hef alltaf ætlað mér stóra hluti
"Ég sé ekki af hverju við ættum ekki að vera í toppbaráttunni."
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Ingvar Kale gekk í raðir Vals í vetur en hann gat ekki komið í veg fyrir 5-1 tap liðsins gegn sterku liði Breiðabliks í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins í kvöld. Blikar mæta Víkingi í undanúrslitum á sunnudag.

„Við vorum á hælunum í þessum leik, sérstaklega í seinni hálfleik. Það verður að hrósa Blikunum fyrir flottan leik. Við getum ekkert afsakað okkur, þeir komust í gegnum vörnina okkar trekk í trekk," sagði Kale eftir leikinn.

„Sem betur fer var þetta ekki fyrsti leikur í Íslandsmóti. Það gerist stundum að maður tapar illa, við rífum okkur úr þessu enda með gott lið."

Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, sagði í viðtali í dag að Valsmenn væru ekki líklegir til að berjast um efstu fjögur sætin eins og staðan er í dag.

„Við erum með okkar markmið og tökum einn leik í einu. Ég hef alltaf ætlað mér stóra hluti í liðum sem ég er í og yfirleitt hefur gengið vel. Ég sé ekki af hverju við ættum ekki að vera í toppbaráttunni," sagði Kale en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner