Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Niðurtalningin - Nýjar áherslur og spennandi tímar í Garðabænum
Niðurtalningin - Nýir tímar í Laugardalnum
Niðurtalningin - Hamingjan er í Víkinni
Hugarburðarbolti Þáttur 12
Niðurtalningin - Andinn á Sauðárkróki er einstakur
Enski boltinn - Er titilbaráttan bara búin?
Innkastið - Víkingur vinnur leiki sem Valur vinnur ekki
Niðurtalningin - Ásþórsdætur í Fylkisspjalli
Niðurtalningin - Ekki afskrifa Keflvíkingana
Útvarpsþátturinn - Kraftur í KR og umdeild dómgæsla
Enski boltinn - El Meistaradeildarveisla
Innkastið - Fljúgandi start og fullar stúkur
Hugarburðarbolti Þáttur 11
Mögnuð saga Diljár - Næstum hætt en ætlar nú á EM með Íslandi
Útvarpsþátturinn - Besti upphitunarþátturinn
Niðurtalningin - Gylfi Sig mættur á Hlíðarenda
Niðurtalningin - Bara ein leið til að toppa síðasta tímabil
Hugarburðarbolti Þáttur 10
Enski boltinn - Ekki bara bestu kaup tímabilsins
Niðurtalningin - Ungu strákarnir þekkja ekkert annað
   mán 16. apríl 2018 12:30
Magnús Már Einarsson
Albert og Ragnar fara yfir víðan völl - Fylkishjartað, tölvuleikir og hestar
Albert Brynjar Ingason og Ragnar Bragi Sveinsson.
Albert Brynjar Ingason og Ragnar Bragi Sveinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert fagnar einu af fjórtán mörkum sínum í Inkasso-deildinni í fyrra.
Albert fagnar einu af fjórtán mörkum sínum í Inkasso-deildinni í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Ragnar Bragi Sveinsson fagnar marki.
Ragnar Bragi Sveinsson fagnar marki.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Albert Brynjar á ferðinni.
Albert Brynjar á ferðinni.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fótbolti.net spáir Fylki 10. sæti í Pepsi-deildinni í sumar. Fylkismenn komu í gær heim frá Spáni þar sem þeir voru í æfingaferð en liðið gerði markalaust jafntefli við KR í æfingaleik á laugardag.

Albert Brynjar Ingason og Ragnar Bragi Sveinsson kíktu í spjall á skrifstofu Fótbolta.net í dag en sá síðarnefndi fékk rauða spjaldið í leiknum á laugardag.

„Þetta var dómaraskandall, ég hef aldrei átt skap saman með spænskum dómurum," sagði Ragnar Bragi léttur. „Þetta áttu að vera sjö gul spjöld," skaut Albert að.

Fylkismenn unnu Inkasso-deildina í fyrra og koma brattir til leiks í Pepsi-deildinni í sumar. Ragnar Bragi fór í Víking fyrir síðasta tímabil en sneri aftur í Fylki í júlí í fyrra. „Ég er aðdáandi af því að vera í góðu partý og þetta var partý sem maður vildi ekki missa af," sagði Ragnar Bragi.

Nánast allir uppaldir
Nánast allir leikmenn Fylkis eru uppaldir Árbæingar. „Af 23 í hóp eru 20 uppaldir Fylkismenn og það er eitthvað sem við ættum að nýta okkur," sagði Ragnar Bragi.

„Það ber að virða þessa stefnu. Hvernig eigum við að ná árangri? Við erum ekki með sama budget og stóru liðin. Erum við að fara að hlúa að þessum ungu góðu strákum sem eru til í Fylki og skapa stemningu eða fá 5-6 happa glappa útlendinga sem gætu skapað óeiningu? Þessi stefna sem var tekin hefur gengið vel og það er virkilega gaman að vera í þessum hóp."

Albert er sjálfur að þjálfa upp næstu kynslóð Fylkismanna í fimmta og sjötta flokki.

„Það er mjög gaman. Við höfum verið í þessu, ég, Börkur, Oddur og Andrés Már. Það er gaman fyrir strákana að það séu strákar úr meistaraflokki að þjálfa," sagði Albert sem fer á Orkumótið í Eyjum í sumar. „Þetta er algjört deja vu og það er hrikalega gaman að taka þátt í þessu."

Lærði tækni af ungum Alberti
Orkumótið er á sama tíma og HM fer fram en þar verður Ragnar Sigurðsson vinur Alberts í eldlínunni. Albert vonar líka að Albert Guðmundsson, frændi sinn, verði í hópnum.

„Mér finnst hann eiga það skilið. Ég væri til í að sjá hann fá fleiri mínútur með aðalliðinu úti en hann hefur staðið sig vel. Hann er stór hluti af framtíðinni í þessu landsliði og það er ekki betri reynsla fyrir hann en að fara með á þetta mót," sagði Albert sem hefur fylgst með nafna sínum frá unga aldri. „Ég var með honum í fótbolta í kjallaranum í Árbænum og hann var farinn að kenna mér tækni þegar hann var átta ára."

Verið er að leggja gervigras á Fylkisvöll og aðalvöllur liðsins verður því með gervigras í framtíðinni. „Mér líst mjög vel á það. Maður sér það hjá Val hvað þeir náðu að bæta sinn leik með því að spila á góðu gervigrasi. Ég held að þetta eigi eftir að hjálpa okkur mikið," sagði Albert.

Vonast til að Ólafur Ingi komi í sumar
Helgi Sigurðsson er þjálfari Fylkis og hann hefur komið með sterkt sigurhugarfar inn í lið Fylkis. „Auðvitað vilja allir vinna fótboltaleiki en hann er gjörsamlega sjúkur í að vinna. Það smitar út frá sér að það sé óþolandi að vinna ekki. Hann hefur komið mikið með það inn í okkar klúbb," sagði Ragnar Bragi.

Miðjumaðurinn reyndi Helgi Valur Daníelsson sneri aftur í Fylki í vetur og orðrómur er um að landsliðsmaðurinn Ólafur Ingi Skúlason snúi aftur í Árbæinn eftir HM í sumar. „Maður hefur eitthvað heyrt af því. Vonandi gerist það. Það væri mjög sterkt fyrir okkur," sagði Albert.

Skotin á Ingimund Níels á léttu nótunum
Utan vallar er Albert mikið í tölvuleikjum eins og kemur fram í viðtalinu hér að ofan. Þá er hann mikið í því að skjóta á vin sinn Ingimund Níels Óskarsson á Twitter síðu sinni.

„Ég held að hann sé sá eini sem hann er að followa á Twitter. Hann loggar sig inn einu sinni á mánuði og þá fæ ég runu af likeum. Hann hefur mjög gaman að þessu, annars væri ég ekki að þessu," sagði Albert.

„Við höfum alltaf verið svona. Þegar hann kom í FH þá litu strákarnir á hvorn annan og spurðu hvort við hötuðum hvorn annan. Við erum alltaf að drulla yfir hvorn annan."

Ragnar Bragi nýtir frítíma utan vallar í hestamennsku. „Þetta er bara hobbí. Alli fer í tölvuleiki á kvöldin á meðan ég fer í hesthús að ríða út. Öll fjölskyldan er í þessu og maður fer í þetta þegar maður hefur tíma," sagði Ragnar Bragi.

Hlustaðu á viðtalið í heild hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner